Grísahnakki Louisiana í chili & piparkryddlegi

Uppskrift

Grísahnakki í Louisiana chili og piparkryddlegi er einföld og bragðmikil lausn á grillið. Kjötið er tilbúið í eldun og því þarf ekkert að standa í því að blanda eigin marineringu, heldur bara skella því beint á grillið.

Kryddlegið gefur kjötinu djúpt og gott bragð með hæfilegum hita, sem passar einstaklega vel með bökuðum kartöflum og góðri fyllingu. Ferskt agúrkusalat setur svo punktinn yfir i-ið og gerir máltíðina enn sumarlegri.

Hráefni

Gríshnakki Louisiana með fylltum kartöflum

 

1 pakki Ali gríshnakki Louisiana í chili og piparkryddlegi
4 x bakaðar kartöflur
Rifinn Cheddar ostur
Sýrður rjómi
6 sneiðar Ali beikon
Graslaukur (saxaður)
Agúrkusalat (sjá uppskrift að neðan)
Köld sósa

 

Agúrkusalat

 
250 g kirsuberjatómatar
1 agúrka
1 rauðlaukur
3 msk. kóríander (saxað)
70 ml virgin ólífuolía
50 ml rauðvínsedik
2 hvítlauksrif
1 tsk. hunangssinnep
1 tsk. salt

 

Aðferð

1
Berið fram með fylltum kartöflum, fersku maíssalati og kaldri sósu.
2
Bakið kartöflurnar þar til þær eru mjúkar í gegn.
3
Grillið beikonið þar til það verður stökkt. Saxið það smátt og takið til með cheddar-osti, sýrðum rjóma og graslauk.
4
Skerið kartöflurnar ofan í, losið aðeins um innihaldið og fyllið þær með sýrðum rjóma, cheddar-osti, beikoni og graslauk.
5
Grillið maískólfana þar til þeir fá fallegar grillrendur. Skerið maísinn af kólfinum og blandið saman við saxaða papriku, rauðlauk, ólífuolíu, límónusafa og ferskan kóríander.
6
Grillið grísahnakkann við meðalhita þar til hann er fallega brúnaður og eldaður í gegn. Leyfið honum að hvíla áður en hann er borinn fram.

Fáanlegt í

Fleiri uppskriftir