Hunangsmarineraðar grísakótilettur í kryddsmjöri
Uppskrift

Hunangsmarineraðar grísakótilettur í kryddsmjöri eru einföld og bragðmikil lausn á grillið. Kjötið er tilbúið í eldun og því þarf ekki að útbúa eigin marineringu, heldur bara skella því beint á grillið. Hunangið gefur kótilettunum léttan sætukeim á meðan kryddsmjörið gerir þær safaríkar og bragðmiklar.
Grillaður maís, fersk sítróna og köld sósa passa einstaklega vel með og gera réttinn að einfaldri en virkilega góðri sumarmáltíð.
Hráefni
Hunangsmarineraðar grísakótilettur í kryddsmjöri með grilluðum maís og fylltum kartöflum
1 pakki Ali hunangsmarineraðar grísakótilettur í kryddsmjöri
4 x bakaðar kartöflur
4 maískólfar
1 sítróna
Rifinn Cheddar ostur
Sýrður rjómi
6 sneiðar Ali beikon
Graslaukur (saxaður)
Ferskt salat
Köld sósa
Aðferð
1
Bakið kartöflurnar þar til þær eru mjúkar í gegn.
2
Grillið beikonið þar til það verður stökkt. Saxið það smátt og takið til ásamt rifnum Cheddar osti, sýrðum rjóma og söxuðum graslauk.
3
Skerið ofan í kartöflurnar og losið aðeins um innihaldið með gaffli. Fyllið þær með sýrðum rjóma, Cheddar osti, beikoni og graslauk.
4
Grillið maískólfana þar til þeir fá fallegar grillrendur. Skerið sítrónuna í tvennt og grillið hana stutt á skurðfletinum.
5
Grillið grísakótiletturnar við meðalhita þar til þær eru fallega brúnaðar og eldaðar í gegn. Passið að snúa þeim reglulega svo hunangsmarineringin brenni ekki.
6
Leyfið kótilettunum að hvíla í nokkrar mínútur áður en þær eru bornar fram.
7
Berið grísakótiletturnar fram með fylltum bökuðum kartöflum, grilluðum maís, grillaðri sítrónu, fersku salati og kaldri sósu.

Fáanlegt í




Fleiri uppskriftir







Chilli grillveisla með beikonvöfðum Jalapeno og ostafylltum kartöflum
Fyrir þá sem vilja smá hita í sumar!



























